head08.jpg
Forsíða
Fréttir
Um félagið
Félagsbréf
Fræðslufundir
Fræðsluferðir
Náttúruminjasafn
Útgáfa HíN
Um tímaritið
Ritstjórn
Leiðbeiningar
Efnisleit
Vistheimt á Íslandi í eina öld - hvað höfum við lært? 19. janúar 2012

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 30. janúar 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Ása L. Aradóttir, vistfræðingur og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, sem flytur erindi sem hún nefnir Vistheimt á Íslandi í eina öld - hvað höfum við lært?
Grænavatnsganga: Aldarminning Sigurðar Þórarinssonar 3. janúar 2012

Þann 8. janúar 2012 verða liðin 100 ár frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, eins ástsælasta vísindamanns þjóðarinnar á síðustu öld. Á þessum degi ætlar HÍN og fleiri félög og samtök sem tengjast náttúruvísindum, náttúruvernd og útiveru að efna til blysfarar kringum Grænavatn í Krýsuvík.

Brottför verður með rútu frá skrifstofu Ferðafélags Íslands Mörkinni 6 kl. 14, sunnudaginn 8. janúar. Fargjald í rútur er kr. 1000 og greiðist við brottför. Þeir sem fara á einkabílum greiða ekki gjald.

Dagskrá hefst kl. 15 við Grænavatn. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu landverndar.

KOSTABOÐ TIL FÉLAGSMANNA! 13. desember 2011

Bókaútgáfan Crymogea sem gefur út hið glæsilega verk Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal, fyrsta formann HÍN, býður félagsmönnum HÍN verkið á kostakjörum, eða 10.500 kr. Leiðbeinandi verð er um 14 þúsund kr. Tilboðið stendur fram á Þorlák og hægt er að nálgast bókina á Barónsstíg 27 þar sem Crymogea er til húsa.
Hið íslenska náttúrufræðifélag · Pósthólf 520 · 200 Kópavogur · Netfang: hin@hin.is