head15.jpg
Forsíða
Fréttir
Um félagið
Félagsbréf
Fræðslufundir
Fræðsluferðir
Náttúruminjasafn
Útgáfa HíN
Um tímaritið
Ritstjórn
Leiðbeiningar
Efnisleit

Fréttir
Leit að gulli á Íslandi 19. apríl 2013
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 29. apríl 2013 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Hjalti Franzson, jarðfræðingur, sem flytur erindi sem hann nefnir Leit að gulli á Íslandi.
Heilsujurtir 13. mars 2013

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 25. mars 2013 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Sigmundur Guðbjarnason, efnafræðingur og fyrrum rektor Háskóla Íslands, sem flytur erindi sem hann nefnir Heilsujurtir.
Íslenskt landslag, lýsing þess og flokkun eftir sjónrænum eiginleikum 20. febrúar 2013

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 25. febrúar 2013 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það eru Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands og Þorvarður Árnason, doktor í þverfaglegum umhverfisfræðum og forstöðumaður Rannsóknaseturs H.Í. á Hornafirði, sem flytja erindi sem þau nefna Íslenskt landslag, lýsing þess og flokkun eftir sjónrænum eiginleikum.
Kúnstir náttúrunnar til sölu! 7. febrúar 2013

Út er komið veglegt tveggja diska albúm með söngvum og myndefni sem tengist Sigurði Þórarinssyni jarðfræðingi. Það eru gamlir vinir og velunnarar Sigurðar sem standa að útgáfunni ásamt félagasamtökum sem Sigurður starfaði í á sínum tíma, Hið íslenska náttúrufræðifélag, Ferðafélag Íslands og Jöklarannsóknafélag Íslands.
Aðalfundur HÍN! 7. febrúar 2013

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags laugardaginn 23. febrúar 2013 kl. 14:00 í Kórnum, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs, Hamraborg 6a, Kópavogi.
Forvitinn jeppi á Mars 13. janúar 2013

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 28. janúar 2013 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, sem flytur erindi sem hann nefnir Forvitinn jeppi á Mars.
Mosar sem glóa – fjölbreytni og vistfræði mosa í ljósi loftslagsbreytinga 15. nóvember 2012

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 26. nóvember 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Ingibjörg Svala Jónsdóttir, plöntuvistfræðingur og prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, sem flytur erindi sem hún nefnir Mosar sem glóa – fjölbreytni og vistfræði mosa í ljósi loftslagsbreytinga.
Nýr ritstjóri! 31. október 2012

Hið íslenska náttúrufræðifélag hefur ráðið Sighvat Blöndahl nýjan ritstjóra Náttúrufræðingsins. Félagið auglýsti starf ritstjóra laust til umsóknar í Fréttablaðinu fyrir um tveimur mánuðum síðan og bárust alls 20 umsóknir um starfið, vandaðar og áhugaverðar í hvívetna. Sex umsækjendur voru boðaðir í viðtal og einn hreppti hnossið, Sighvatur Blöndahl. Sighvatur mun hefja störf 1.desember næstkomandi. Gert er ráð fyrir að aðsetur ritstjórans verði áfram hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Makríll við Ísland. Líffræði - stofnstærð og göngur. 10. október 2012

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 29. október 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Þorsteinn Sigurðsson, fiskifræðingur og forstöðumaður Nytjastofnasviðs Hafrannsóknarstofnunar, sem flytur erindi sem hann nefnir Makríll við Ísland. Líffræði - stofnstærð og göngur.
Samspil jarðskjálftavirkni og jökulhlaupa á Íslandi 17. september 2012
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 24. september 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Kristín S. Vogfjörð, jarðeðlisfræðingur sem flytur erindi sem hún nefnir Samspil jarðskjálftavirkni og jökulhlaupa á Íslandi.
Ritstjóri óskast! 28. ágúst 2012

Hið íslenska náttúrufræðifélag óskar eftir að ráða starfsmann til að ritstýra félagsriti sínu Náttúrufræðingnum. Náttúrufræðingurinn er alþýðlegt fræðslurit um náttúru Íslands og náttúrufræði og hefur tímaritið komið út samfleytt í 82 ár síðan 1931. Fjögur hefti eru gefin út á ári og er hver árgangur um 160 blaðsíður.
Hvenær gýs Hekla? Innviðir eldfjalls og jarðskorpuhreyfingar 23. apríl 2012

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 30. apríl 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur sem flytur erindi sem hann nefnir Hvenær gýs Hekla? Innviðir eldfjalls og jarðskorpuhreyfingar.
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur: Minningabrot 17. mars 2012

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 26. mars 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Björn Pálsson, sagnfræðingur og fyrrum héraðsskjalavörður Árnesinga, sem flytur erindi sem hann nefnir Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur: Minningabrot
Tveir nýir heiðursfélagar! 7. mars 2012

Á aðalfundi HÍN laugardaginn 25. febrúar síðastliðinn voru kjörnir tveir heiðursfélagar – þær Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur og Margrét Guðnadóttir læknir og veirufræðingur. Heiðursfélagi HÍN er sæmdarheiti sem aðeins hlotnast mönnum sem leyst hafa af hendi sérlega mikilsverð störf til eflingar félaginu eða náð frábærum árangri á sviði rannsókna eða kennslu í náttúrufræðum
Af aðalfundi HÍN 2012 7. mars 2012

Aðalfundur HÍN var haldinn laugardaginn 25. febrúar 2012 í húsakynnum Náttúrufræðistofu Kópavogs. Árni Hjartarson formaður félagsins flutti skýrslu stjórnar fyrir árið 2011 sem lesa má hér. Í máli Árna kom m.a. fram að félagafjöldi við lok árs 2011 var 1296, sem er nær sami fjöldi og árið á undan. Þetta verður að teljast viðunandi í ljósi
bágs efnahagsástands og almenns aðhalds í þjóðfélaginu.
Frábært tilboðsverð á Þingvallabók! 14. febrúar 2012

Félagsmönnum HÍN býðst nú að kaupa bókina Thingvallavatn – A unique world evolving. A world heritage site, á einstkaleg góðu verði, eða aðeins 5000 kr. Þessi kjarakaup eru í boði bókaútgáfunnar Opnu ehf. og stendur fram á vor. Bókin er að stofni til ensk þýðing á bókinni Þingvallavatn – undraheimur í mótun sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2002. Hér hefur hún verið endurskoðuð rækilega, nýju efni og rannsóknum bætt við ásamt ljósmyndum og skýringarmyndum og mjög ítarlega farið í ferli umsóknar Íslands að Þingvellir verði á náttúruminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Ritstjórar ensku bókarinnar líkt og þeirrar íslensku eru Páll Hersteinsson og Pétur M. Jónasson.
Að fara litum. Litbreytingaferli litföróttra hrossa. 13. febrúar 2012
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 27. febrúar 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Páll Imsland, jarðfræðingur og kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð, sem flytur erindi sem hann nefnir Að fara litum. Litbreytingaferli litföróttra hrossa.
Vistheimt á Íslandi í eina öld - hvað höfum við lært? 19. janúar 2012

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 30. janúar 2012 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Ása L. Aradóttir, vistfræðingur og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, sem flytur erindi sem hún nefnir Vistheimt á Íslandi í eina öld - hvað höfum við lært?
Grænavatnsganga: Aldarminning Sigurðar Þórarinssonar 3. janúar 2012

Þann 8. janúar 2012 verða liðin 100 ár frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, eins ástsælasta vísindamanns þjóðarinnar á síðustu öld. Á þessum degi ætlar HÍN og fleiri félög og samtök sem tengjast náttúruvísindum, náttúruvernd og útiveru að efna til blysfarar kringum Grænavatn í Krýsuvík.

Brottför verður með rútu frá skrifstofu Ferðafélags Íslands Mörkinni 6 kl. 14, sunnudaginn 8. janúar. Fargjald í rútur er kr. 1000 og greiðist við brottför. Þeir sem fara á einkabílum greiða ekki gjald.

Dagskrá hefst kl. 15 við Grænavatn. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu landverndar.

KOSTABOÐ TIL FÉLAGSMANNA! 13. desember 2011

Bókaútgáfan Crymogea sem gefur út hið glæsilega verk Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal, fyrsta formann HÍN, býður félagsmönnum HÍN verkið á kostakjörum, eða 10.500 kr. Leiðbeinandi verð er um 14 þúsund kr. Tilboðið stendur fram á Þorlák og hægt er að nálgast bókina á Barónsstíg 27 þar sem Crymogea er til húsa.
Hallmundarkviða og Hallmundarhraun. Eldforn lýsing á eldsumbrotum 19. nóvember 2011

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 28. nóvember 2011 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Árni Hjartarson, jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum, sem flytur erindi sem hann nefnir Hallmundarkviða og Hallmundarhraun. Eldforn lýsing á eldsumbrotum.
Með kúlustrýnebbu undir eldhúsvaskinum – funga íslenskra húsa 23. október 2011

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 31. október 2011 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri, sem flytur erindi sem hún nefnir Með kúlustrýnebbu undir eldhúsvaskinum – funga íslenskra húsa.
Ertuyglan og hugsanleg áhrif hennar á lúpínu Íslandi 17. september 2011

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 26. september 2011 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Guðmundur Halldórsson, skordýrafræðingur og rannsóknarstjóri hjá Landgræðslu ríkisins, sem flytur erindi sem hann nefnir Ertuyglan og hugsanleg áhrif hennar á lúpínu Íslandi.
Fiskstofnar Þjórsár og göngur þeirra 22. apríl 2011

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 2. maí 2011 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Magnús Jóhannsson, vatnalíffræðingur og sérfræðingur hjá Veiðimálastofnun, sem flytur erindi sem hann nefnir Fiskstofnar Þjórsár og göngur þeirra.
Staðbundið veður 25. mars 2011

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 28. mars 2011 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands og prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands, sem flytur erindi sem hann nefnir Staðbundið veður.
Ný útgáfa á bláu Þingvallabókinni 3. mars 2011

Þingvallanefnd og Bókaútgáfan Opna ásamt Hinu íslenska náttúrufræðifélagi efna til samkomu í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, miðvikudaginn 9. mars kl. 17.00 til heiðurs Pétri M. Jónassyni níræðum og í tilefni af nýrri útgáfu bókarinnar Þingvallavatn – Undraheimur í mótun, sem kemur nú út á ensku í fyrsta skipti, aukin og endurbætt, undir heitinu Thingvallavatn – a unique world evolving,í ritstjórn Péturs M. Jónassonar og Páls Hersteinssonar.

Flutt verða ávörp og boðið upp á léttar veitingar í anddyrinu eftir athöfnina.
Meðal ræðumanna verður prófessor Bror Jonsson vatnalíffræðingur hjá Norsk Institutt for Naturforskning, en hann kom að Þingvallavatnsrannsóknum á níunda áratugnum og sinnti athugunum á bleikjugerðunum fjórum í vatninu. Prófessor Bror er einn virtasti núlifandi fræðimaðurinn á sviði fiskavistfræði, einkum er varðar líffræði urriða og skyldra fiska af laxfiskaætt.

Félagsmenn HÍN eru allir velkomnir og hvattir til að mæta og heiðra Pétur og hans merka framlag til náttúrufræða á Íslandi.

Vonir standa til að bókin verði til sölu á staðnum á hagstæðu verði fyrir félagsmenn.


"Senn bryddir á Barða" Stutt samantekt um Kötlu. 15. febrúar 2011

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 28. febrúar 2011 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Bergrún Arna Óladóttir, jarðfræðingur hjá Norræna eldfjallasetrinu, Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, sem flytur erindi sem hún nefnir "Senn bryddir á Barða" Stutt samantekt um Kötlu.
Aðalfundur HÍN! 11. febrúar 2011

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags laugardaginn 26. febrúar 2011 kl. 14:00 í Kórnum, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs að Hamraborg 6a, Kópavogi.

Ussuriland - hin rússneska Amazon! 20. janúar 2011

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 31. janúar 2011 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Jón Már Halldórsson, líffræðingur og sérfræðingur hjá Fiskistofu, sem flytur erindi sem hann nefnir „Ussuriland - hin rússneska Amazon!“.
Alaskalúpína og skógarkerfill - ágengar tegundir á Íslandi. 25. nóvember 2010

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 29. nóvember 2010 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Sigurður H. Magnússon, gróðurvistfræðingur og sérfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, sem flytur erindi sem hann nefnir „Alaskalúpína og skógarkerfill - ágengar tegundir á Íslandi“.
Komur hvítabjarna til Íslands á undanförnum árum. Hvernig brugðumst við þeim? Hvað höfum við lært? 14. október 2010

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 25. október 2010 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra, sem flytur erindi sem hann nefnir „Komur hvítabjarna til Íslands á undanförnum árum. Hvernig brugðumst við þeim? Hvað höfum við lært?“.
Flúorvöktun í gróðri og jarðvegi í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli 17. september 2010

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 27. september 2010 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Rannveig Anna Guicharnaud, jarðvegsfræðingur við Landbúnaðarháskóla Íslands, sem flytur erindi sem hún nefnir „Flúorvöktun í gróðri og jarðvegi í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli“.
Fræðsluganga HÍN á menningarnótt 13. ágúst 2010

Fræðsluganga Hins íslenska náttúrufræðifélags verður farin á menningarnótt, laugardaginn 21. ágúst kl. 17. Safnast verður saman við gömlu Loftskeytastöðina við Suðurgötu þar sem Náttúruminjasafn Íslands er til húsa.
Fortíð, nútíð og framtíð lundastofns Vestmannaeyja 14. apríl 2010

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 26. apríl 2010 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er Dr. Erpur Snær Hansen, líffræðingur við Náttúrustofu Suðurlands, sem flytur erindi sem hann nefnir „Fortíð, nútíð og framtíð lundastofns Vestmannaeyja“.
Veðurfarsbreytingar og lífríki sjávar við Ísland 22. mars 2010


Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 29. mars 2010 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er dr. Ólafur S. Ástþórsson, sjávarlíffræðingur við Hafrannsóknarstofnunina, sem flytur erindi sem hann nefnir „Veðurfarsbreytingar og lífríki sjávar við Ísland“.
Ný stjórn HÍN 10. mars 2010
Ný stjórn HÍN var kosin á aðalfundi HÍN laugardaginn 27. febrúar s.l. og hana mynda Árni Hjartarson formaður (Íslenskum orkurannsóknum, Reykjavík), Esther Ruth Guðmundsdóttir varaformaður (Jarðvísindastofnun Háskólans, Reykjavík), Hilmar J. Malmquist ritari (Náttúrufræðistofu Kópavogs, Kópavogi), Kristinn J. Albertsson gjaldkeri (Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyri), Jóhann Þórsson meðstjórnandi og félagsvörður (Landgræðslu Ríkisins, Hellu), Rannveig Guicharnaud meðstjórnandi og fulltrúi stjórnar í ritstjórn Náttúrufræðingsins (Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjavík) og Ester Ýr Jónsdóttir meðstjórnandi og fræðslustjóri (Fjölbrautaskóla Suðurlands, Selfossi).
Áhrif manna á kolefnishringrás Jarðar 11. febrúar 2010

Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 22. febrúar 2010 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands, og hefst erindið kl. 17:15.

Það er dr. Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur við Jarðvísinda-
stofnun Háskólans,
sem flytur erindi sem hann nefnir „ Áhrif mannsins á kolefnishringrásina á Jörðinni“.
izle

oyun

oyun

pes

youtube

bedava izle

izle

oyun

ayniyer
facebook
video izle tubeadana oto kiralama
Aðalfundur HÍN 27. febrúar 2010. 10. febrúar 2010

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags laugardaginn 27. febrúar 2010 kl. 14:00 í Safnahúsinu, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs að Hamraborg 6a, Kópavogi.
Hið Nýja Ísland! 18. janúar 2010

Athygli er vakin á breytingum á næsta fræðsluerindi HÍN sem verður haldið mánudaginn 25. janúar 2010. Af óviðráðanlegum ástæðum fellur niður áður auglýst erindi Rannveigar Guicharnaud, en í skarðið hleypur léttstígur dr. Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum, og flytur erindi
sem hann nefnir því áhugaverða nafni
„Nýja Ísland: Ný sýn á jarðfræði Íslands“.

Þau afar gleðilegu tíðindi hafa jafnframt gerst, að félagið hefur endurheimt fundaraðstöðuna í stofu 132 í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands. Erindi Hauks um hið Nýja Ísland verður sem sagt haldið í stofu 132, Öskju, mánudaginn 25. janúar n.k. og hefst kl. 17:15.

HÍN vill nota tækifærið og þakka Menntaskólanum við Sund kærlega fyrir endurgjaldslaus afnot af fyrirlestrarsal skólans á síðasta ári.
Landnotkun á Íslandi 2010 13. janúar 2010

Landnotkunarsetur Háskóla Íslands og Háskólafélag Suðurlands halda ráðstefnu á Hótel Selfossi, fimmtudaginn 28. janúar 2010. Ráðstefnugjald er 7500 kr. en 3500 kr. fyrir námsmenn.

Skráning þarf að fara fram fyrir 23. janúar á vefslóðinni:
www.fraedasetur.hi.is/page/sudurland_landnotkun_skraning

Fundarstjóri: Sigurður Sigursveinsson – Háskólafélagi Suðurlands

Dagskrá ráðstefnunnar má lesa hér.
AFMÆLISFUNDUR HÍN Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU! 16. desember 2009

Mánudaginn 28. desember 2009, kl. 13-16 verður 120 ára afmælis Hins íslenska náttúrufræðifélags fagnað í Bókasal Þjóðmenningahússins við Hverfisgötu. Yfirskrift fundarins er Náttúruminjasafn Íslands – hvernig safn viljum við eignast?, en eitt helsta baráttumál félagsins frá upphafi hefur verið að koma upp náttúruminjasafni fyrir þjóðina í Reykjavík.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með framsöguerindum valinkunnra manna og pallborðsumræður verða með þátttöku Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra og Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.

Dagskrá afmælisfundarins má lesa hér.
Jöklar á Íslandi – nýr fundarstaður! 24. nóvember 2009

Næsta fræðsluerindi HÍN er á mánudaginn 30. nóvember og hefst kl. 17:15, en þá mun dr. Helgi Björnsson, jöklafræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans, flytja erindi sem hann nefnir Jöklar á Íslandi í upphafi 21. aldar og framtíðarhorfur.

Athygli er vakin á því að tilhögun fundarins er breytt. Í fyrsta lagi verður erindið flutt í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, en ekki í sal Menntaskólans við Sund eins og auglýst var í síðasta félagsbréfi.

Í öðru lagi standa Jöklarannsóknafélag Íslands og útgáfufyrirtækið Opna ehf. að erindinu auk HÍN.

Í þriðja lagi mun félagsmönnum standa til boða að kaupa á hagstæðu verði á staðnum glænýja og veglega bók dr. Helga, Jöklar á Íslandi, sem Opna ehf. gefur út.

Freysteinsvaka 30. október 2009
Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur Freysteinsvöku á Elliðavatni þann 7. nóvember 2009, kl:13:00 – 17:00. Umfjöllunarefnið verður náttúrufræðingurinn Freysteinn heitinn Sigurðsson og hin fjölbreytilegu áhugamál hans. Eins og flestir félagsmenn HÍN kannast líklega við gegndi Freysteinn formennsku fyrir félagið í 12 ár, frá 1990–2002.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Hér má kynna sér dagskrá Freysteinsvöku.

Gróðurframvinda í Skaftáreldahrauni 20. október 2009
Fyrsta fræðsluerindi HÍN í vetur verður haldið mánudaginn 26. október 2009 og fer það fram í fyrirlestrasal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43. Erindið hefst kl. 17:15. Það er Jóna Björk Jónsdóttir, líffræðingur og kennari við Menntaskólann að Laugarvatni sem ríður á vaðið. Erindið nefnir hún „Gróðurframvinda í Skaftáreldahrauni og áhrif hraungambra (Racomitrium lanuginosum) á landnám háplantna.“
Hið íslenska náttúrufræðifélag 120 ára 16. júlí 2009
Hið íslenska náttúrufræðifélag var stofnað í leikfimishúsi barnaskólans í Reykjavík þann 16. júlí 1889. Félagið er því 120 ára um þessar mundir. Félagsmönnum er óskað til hamingju með þennan merka áfanga. Örfá félög hérlendis hafa starfað samfleytt svo lengi. Einn helsti tilgangur félagsins hefur verið að koma á fót náttúruminjasafni í Reykjavík fyrir þjóðina. Á ýmsu hefur gengið í þeim efnum, eins og fræðast má um hér á heimasíðunni undir tenglinum Náttúruminjasafn.
HÍN hlaut veglegan útgáfustyrk 3. júlí 2009
Hið íslenska náttúrufræðifélag hlaut í byrjun júní styrk að upphæð 500.000 kr. úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups. Styrkurinn verður notaður til að greiða Landsbókasafni Íslands–Háskólabókasafni fyrir vinnu við að snara Náttúrufræðingnum yfir á stafrænt snið, en samningur um þar að lútandi verk var undirritaður í janúar s.l.
Síðasti fræðslufundur HÍN fyrir sumarhlé. Stjörnuhimininn yfir Íslandi 21. apríl 2009
Mánudaginn 27. apríl flytur Snævarr Guðmundsson erindi um stjörnuhimininn yfir Íslandi.

Erindið verður haldið kl. 17:15 í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43.
Þriðja fræðsluerindi HÍN árið 2009. Jurtir í jarðsögu Íslands 25. mars 2009
Mánudaginn 30. mars flytur Dr. Friðgeir Grímsson erindi um steingerðar jurtir úr jarðlögum á Íslandi.

Erindið verður haldið kl. 17:15 í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43.

Nánar um erindið
NÝ STJÓRN HÍN KOSIN 10. mars 2009
Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags var haldinn laugardaginn 28. febrúar 2009 í Safnahúsinu, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs. Ný stjórn var kosin fyrir tímabilið 2009–2010 og hana mynda: Kristín Svavarsdóttir formaður, Esther Ruth Guðmundsdóttir varaformaður, Hilmar J. Malmquist ritari, Kristinn J. Albertsson gjaldkeri, Droplaug Ólafsdóttir meðstjórnandi, Helgi Guðmundsson meðstjórnandi og Ester Ýr Jónsdóttir meðstjórnandi.
Aðalfundur HÍN! 11. febrúar 2009
Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags laugardaginn 28.
febrúar 2009 kl. 14:00 í Safnahúsinu, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs,
Hamraborg 6a, Kópavogi.
Annað fræðsluerindi HÍN á nýju ári. Pokadýr í Ástralíu 10. febrúar 2009
Mánudaginn 23. febrúar flytur Rannveig Magnúsdóttir erindi um pokadýr Ástralíu.

Erindið verður haldið kl. 17:15 í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43.

Nánar um erindið
Fjórða vetrarerindi HÍN og það fyrsta á nýju ári. Lífríkiskreppur í Mývatni 21. janúar 2009
Mánudaginn 26. janúar flytur Dr. Árni Einarsson erindi um lífríki Mývatns.

Erindið verður haldið kl. 17:15 í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43.

Nánar um erindið
Áríðandi tilkynning um fræðslufundi HÍN 15. janúar 2009
Fræðsluerindi HÍN hafa í hartnær sjö áratugi verið haldin í húsnæði Háskóla Íslands. Vegna nýlegra breytinga í gjaldtöku Háskólans fyrir húsnæði undir erindi félagsins sér stjórn HÍN sér ekki annað fært en að flytja fræðsluerindin í annað húsnæði. Frá og með janúar 2009 og þar til annað verður ákveðið verða fræðsluerindi Hins íslenska náttúrufræðifélags haldin í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi 43.
Þriðja vetrarerindi HÍN. Verndun og varðveisla íslenskra hraunhella 23. október 2008
Mánudaginn 24. nóvember 2008 flytur Árni B. Stefánsson augnlæknir erindi um hella á Íslandi.

Erindið verður haldið kl. 17:15 í stofu 132, í Öskju, Háskóla Íslands.
Annað vetrarerindi HÍN. Jöklabreytingar og loftslag 15. október 2008
Mánudaginn 27. október 2008 flytur Fil. kand. Oddur Sigurðsson erindi um áhrif loftslagsbreytinga á jökla Íslands.
Erindið verður haldið kl. 17:15 í stofu 132, í Öskju, Háskóla Íslands.
Fyrsta vetrarerindi HÍN. Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á lífríki Íslands 18. september 2008
Mánudaginn 29. september 2008 flytja Dr. Snorri Baldursson og Dr. Bjarni Diðrik Sigurðsson erindi um rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrif þeirra á lífríki lands og sjávar. Erindið er byggt á rannsóknum síðustu ára og nýútkominni skýrslu umhverfisráðuneytisins um Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi.
Erindið verður haldið kl. 17:15 í stofu 132, í Öskju, Háskóla Íslands.
Mistök í prentsmiðju! 20. júní 2008
Félagsmenn fengu fyrir skömmu í hendurnar nýjasta Náttúrufræðinginn, 3.–4. hefti, 76. árg., 2008. Í ljós kom að hluti af upplagi tímaritsins var ranglega settur saman í prentsmiðjunni. Til dæmis voru sumar greinar tvíteknar, en aðrar vantaði alveg. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum og eru þeir félagsmenn sem fengu gallað eintak vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hrefnu B. Ingólfsdóttur, ritstjóra Náttúrufræðingsins, sem mun senda nýtt eintak.

Sími Hrefnu ritstjóra er 570 0433 og netfangið er dreifing@hin.is
Í fótspor jarðfræðingsins dr. Walkers á Austurlandi 5. apríl 2008
Hið íslenska náttúrufræðifélag í samstarfi við undirbúningshóp að Vísindasetri á Breiðdalsvík stendur fyrir fræðsluerindi mánudaginn 5. maí 2008 kl. 17:15 í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur og fyrrverandi ráðherra flytur erindi sem hann nefnir: Í fótspor jarðfræðingsins dr. Walkers á Austurlandi. Rannsóknir hans opnuðu nýjan heim fyrir lærða og leika.
NÝ STJÓRN HÍN 4. apríl 2008
Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags var haldinn laugardaginn 23. febrúar 2008 í Safnahúsinu, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs að Hamraborg 6a, Kópavogi. Ný stjórn var kosin fyrir tímabilið 2008–2009 og hana mynda: Kristín Svavarsdóttir, formaður, Esther Ruth Guðmundsdóttir, varaformaður, Hilmar J. Malmquist, ritari, Kristinn J. Albertsson, gjaldkeri, Droplaug Ólafsdóttir, meðstjórnandi, Helgi Guðmundsson, meðstjórnandi, og Friðgeir Grímsson, meðstjórnandi.

GRÍPTU GÆSINA! 28. mars 2008
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 31. mars 2008 kl. 17:15 í stofu 132, Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Dr. Arnór Sigfússon, líffræðingur hjá verkfræðistofu VST, flytur erindi sem hann nefnir „Af gæsum.“

SETLÖG, LÍFRÍKI OG HAFSTRAUMAR VIÐ NORÐURLAND 22. febrúar 2008
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 25. febrúar 2008 kl. 17:15 í stofu 132, Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Dr. Jón Eiríksson, jarðfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans, flytur erindi sem hann nefnir „Setlög, lífríki og hafstraumar við Norðurland frá ísöld til okkar daga.“

AÐALFUNDUR HÍN 2. febrúar 2008
Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags laugardaginn 23. febrúar 2008 kl. 14:00 í Safnahúsinu, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs að Hamraborg 6a, Kópavogi.

GALAPÁGOSEYJAR – PARADÍS Í HÆTTU? 21. janúar 2008
Fyrsta fræðsluerindi HÍN eftir áramót verður haldið mánudaginn 28. Janúar 2008 kl. 17:15 og fer það fram í stofu 132, Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Dr. Hafdís Hanna Ægisdóttir, plöntuvistfræðingur á Líffræðistofnun Háskólans, ríður á vaðið og er heitið á erindinu hennar „GALÁPAGOSEYJAR – PARADÍS Í HÆTTU?“

Nýr Náttúrufræðingur kominn út 5. desember 2007

Náttúrufræðingurinn, 1.-2. hefti, 76. árgangur 2007 er kominn út.

Margar áhugaverðar greinar eru í tímaritinu, þ. á m. um einstakar grunnvatnsmarflær í lífríki Íslands, Stórubólu, silfurberg og ævaforna melrakka

Hér má nálgast efnisyfirlit 1.-2. hefti 76. árgangs á pdf-formi.
Náttúrufræði Grunnavíkur-Jóns gefin út 27. september 2007
Ritið Náttúrufræði. Steinafræði – Fiskafræði eftir Jón Ólafsson frá Grunnavík var nýlega gefið út á vegum Góðvina Grunnavíkur-Jóns. Jón samdi verkið um um 1737 og hefur það ekki birst áður. Af þessari útgáfu er mikill fengur í menningar- og náttúrusögulegu ljósi.
Lifandi steingervingar! 20. september 2007
Ágætu félagsmenn Hins íslenska náttúrufræðifélags, fyrsta fræðsluerindi vetrarins verður mánudaginn 24. september n.k. og hefst það kl. 17:15 í, vel að merkja, stofu 158, í VRII húsi Háskólans, en ekki í Öskju eins og verið hefur. Það er Bjarni Kristófer Kristjánsson sem ríður á vaðið með erindi sem hann nefnir „Íslenskar grunnvatnsmarflær: Lifandi steingervingar?“
Gönguferð HÍN á Þríhnúkagíg 6. júlí 2007
Það var bæði rok og rigning þegar hópur göngufólks hittist á Bláfjallaveginum í gærkvöldi. Þrátt fyrir óskemmtilegt veður (sjá myndir) ákváðu rúmlega 20 manns að ganga á Þríhnúkagíg undir öruggri leiðsögn Kristjáns Sæmundssonar jarðfræðings.
Gengið á Þríhnúkagíg 28. maí 2007
Fyrsta fræðsluferð HÍN í ár verður miðvikudaginn 6. júní og er stefnt á Þríhnúkagíg sem er norður af Grindaskörðum í Bláfjallafólkvangi. Leiðsögumaður verður valinkunnur jarðfræðingur sem þekkir svæðið mjög vel, dr. Kristján Sæmundsson.
Nýr safnstjóri Náttúruminjasafns Íslands 27. maí 2007
Dr. Helgi Torfason, jarðfræðingur og varaformaður Hins íslenska náttúrufræðifélags var skipaður 8. maí síðastliðinn safnstjóri hins nýja Náttúruminjasafns Íslands . Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálráðherra, sem veitti stöðuna, en alls bárust menntamálaráðuneytinu sjö umsóknir um embættið.
Breytingar á lífríki Breiðafjarðar: Vöktun sjófuglastofna 27. apríl 2007
Næsta fræðsluerindi á dagskrá Hins íslenska náttúrufræðifélags verður mánudaginn 30. apríl kl. 17:15, stofu 132, í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans. Þá mun dr. Ævar Petersen dýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands flytja erindi sem hann nefnir „Breytingar á lífríki Breiðafjarðar: Vöktun sjófuglastofna.“
Hnattlægar umhverfisrannsóknir 4. apríl 2007
Ráðstefna í samstarfi POURQUOI PAS? Franskt vor á Íslandi og Háskóla Íslands verður haldin þriðjudaginn 10. apríl kl. 15-17 í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Frá aðalfundi HÍN 3. apríl 2007
Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags var haldinn laugardaginn 24. febrúar 2007 í Kópavogi. Stjórn HÍN árið 2007 er þannig skipuð: Kristín Svavarsdóttir (formaður), Helgi Torfason (varaformaður), Hilmar J. Malmquist (ritari), Kristinn J. Albertsson (gjaldkeri), Droplaug Ólafsdóttir (meðstjórnandi), Esther Ruth Guðmundsdóttir (meðstjórnandi) og Helgi Guðmundsson (meðstjórnandi).
Lög um Náttúruminjasafn Íslands samþykkt! 3. apríl 2007
Lög um Náttúruminjasafn Íslands voru samþykkt á Alþingi 17. mars 2007 með 49 atkvæðum, en 14 þingmenn voru fjarstaddir. Þetta er merkur áfangi í starfsemi HÍN og full ástæða er til þess að fagna gildistöku laganna. Nú ríður á að ráðast hið fyrsta í vinnu sem snýr að stefnumótun og skipulagningu á starfsemi hins nýja safns. Þar verður að vanda vel til verks og kalla til HÍN og aðra hæfa aðila.
Skeiðarársandur - séður með augum plöntuvistfræðings 23. mars 2007
Mánudag 26. mars 2007 munu plöntuvistfræðingarnir dr. Kristín Svavarsdóttir hjá Landgræðslu ríkisins og dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor við Háskóla Íslands munu segja frá rannsóknum sínum í erindi sem nefnist „Skeiðarársandur - séður með augum plöntuvistfræðings“.
Aðalfundur HÍN! 19. febrúar 2007
Boðað er til aðalfundar hjá Hinu íslenska náttúrufræðifélagi laugardaginn 24. febrúar 2007 kl. 14:00 í Kórnum, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs í Safnahúsinu, Hamraborg 6a, Kópavogi.
„Gammablossar og heimsfræði“ 18. febrúar 2007
Næsta fræðsluerindi á dagskrá Hins íslenska náttúrufræðifélags verður mánudaginn 26. febrúar 2007 kl. 17:15, í stofu 132, í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans. Þá flytur dr. Gunnlaugur Björnsson, stjarneðlisfræðingur á Raunvísindastofun Háksólans, erindi sem hann nefnir „Gammablossar og heimsfræði“.

Náttúruminjasafn Íslands 17. febrúar 2007
Félagsmenn HÍN hafa líklega orðið varir við allnokkra umræðu að undanförnu í þjóðfélaginu um málefni Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands. Í þessu sambandi sendi stjórn HÍN frá sér opið bréf til Alþingismanna, sem birt var í Morgunblaðinu 13. febrúar 2007, og ritari félagsins skrifaði grein í Morgunblaðið sem birtist á miðopnu 27. desember 2006.
Gróðurframvinda í Surtsey: Útbreiðsla tegunda og dreifingarmynstur 25. janúar 2007
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 29. janúar 2007 kl. 17:15 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans, í stofu 132. Þá mun dr.Sigurður H. Magnússon plöntuvistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands mun flytja erindi sem hann nefnir; „Gróðurframvinda í Surtsey: Útbreiðsla tegunda og dreifingarmynstur.“
Nýr ritstjóri Náttúrufræðingsins tekur við störfum 10. desember 2006
Á dögunum urðu þau tímamót í útgáfu Náttúrufræðingsins að nýr ritstjóri, Hrefna Berglind Ingólfsdóttir, tók við störfum. Samtímis því flutti ritstjóri sig um set frá Náttúrufræðistofnun Íslands til Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Þjóðgarðar í sjó 24. nóvember 2006
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 27. nóvember kl. 17:15 í stofu 132, í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans. Þá flytur Sigríður Kristinsdóttir líffræðingur á Náttúrustofu Reykjaness erindi sem hún nefnir „Þjóðgarðar í sjó“
Veðurfarsbreytingar - hækkun hita eða eitthvað meira? 25. október 2006
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 30. október kl. 17:15 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans, í stofu 132. Þá mun Trausti Jónsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands flytja erindi sem hann nefnir „Veðurfarsbreytingar - hækkun hita eða eitthvað meira?“
Ráðstefna um samspil hafstrauma og loftslagsbreytinga og lífríkis hafsins í N-Atlantshafi 16. ágúst 2006
Við vekjum athygli á alþjóðlegri ráðstefnu sem íslensk stjórnvöld standa fyrir í Reykjavík 11.-12. sept. nk. um samspil hafstrauma og loftslagsbreytinga og lífríkis hafsins í N-Atlantshafi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar. Eins er hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á síðunni: http://www.hafro.is/symposium/
Afmælisrit Örnólfs Thorlaciusar 10. júlí 2006
Þann 9. september næstkomandi verður Örnólfur Thorlacius, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Hamrahlíð, 75 ára. Af því tilefni hafa vinir og velunnarar hans tekið höndum saman og ákveðið að gefa út vandað afmælisrit honum til heiðurs. Nú er tækifæri til að skrá sig á heillaóskaskrána (Tabula gratulatoria) og eignast bókina við útgáfu. Gerist áskrifandi með skeyti á holar@simnet .is eða í s. 587-2619
Frumvarp til laga um Náttúruminjasafn Íslands 16. maí 2006
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags sendi frá sér í byrjun maí umsögn um þetta langþráða baráttumál félagsins. Umsögn HÍN má kynna sér hér. Stjórn HÍN hvetur félagsmenn eindregið til að kynna sér frumvarpið á heimasíðu alþingis og senda menntamálanefnd athugasemdir.
Nýir straumar. Fyrirlestrar í boði Forseta Íslands 8. maí 2006
að þessu sinni í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands og Landgræðslu ríkisins. Fyrirlesari er: RATTAN LAL, Prófessor við Ohio State University. Erindi hans kallast: “Landheilsa jarðar og glíman við loftslagsbreytingar” eða “Mitigating climate change by advancing land health and food security”. Fyrirlesturinn verður haldinn í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar við Sturlugötu miðvikudaginn 10 maí kl 16:00. Fyrirlesturinn verður á ensku og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Rannsóknir á félagsgerð hesta í íslenskum stóðum - næsta fræðsluerindi HÍN 21. apríl 2006
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 24. apríl kl. 17:15 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans, í stofu 132. Þá mun dr. Hrefna Sigurjónsdóttir prófessor í líffræði við Kennaraháskóla Íslands flytja erindi sem hún nefnir; Rannsóknir á félagsgerð hesta í íslenskum stóðum.
Vorboðar eða vágestir? - næsta fræðsluerindi HÍN 22. mars 2006
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 27. mars n.k. kl. 17:15 í Öskju, stofu 132. Þá mun dr. Guðmundur A. Guðmundsson fuglafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands flytja erindið Vorboðar eða vágestir? Guðmundur mun fjalla um farfugla og meinta tengingu þeirra við dreifingu fuglaflensu.
Stefnumót við Hjörleif sjötugan, laugardaginn 25. mars n.k. 17. mars 2006
Hið íslenska náttúrufræðifélag heldur ásamt 10 öðrum frjálsum félagasamtökum málþing til heiðurs Hjörleifi Guttormssyni í tilefni sjötugsafmælis hans á síðasta ári. Málþingið verður haldið laugardaginn 25. mars í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 í Reykjavík og hefst það kl. 13:00.
Af fálkum - næsta fræðsluerindi HÍN 7. febrúar 2006
Næsta fræðsluerindi HÍN verður haldið mánudaginn 27. febrúar nk. Þá mun dr. Ólafur K. Nielsen vistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands flytja erindið Af fálkum.
Aðalfundur HÍN! 7. febrúar 2006
Boðað er til aðalfundar hjá Hinu íslenska náttúrufræðifélagi laugardaginn 25. febrúar 2006 kl. 14:00 í Kórnum, fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs í Safnahúsinu, Hamraborg 6a, Kópavogi. Sjá nánar um dagskrá aðalfundar hér.
Nýir straumar. Fyrirlestrar í boði Forseta Íslands 12. janúar 2006
að þessu sinni í samvinnu við Háskóla Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans. Fyrirlesari er: WALLACE S. BROECKER, Prófessor við Kolumbíuháskóla í New York. Erindi hans kallast: “Glíman við loftslagsbreytingarnar” eða “Taming the Angry Beast of Climate Change” Fyrirlesturinn verður haldinn í Öskju, Náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands, Sturlugötu 7, föstudaginn 13. Janúar kl. 17:15. Fyrirlesturinn verður á ensku og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Heimasíða Hins íslenska náttúrufræðifélags opnuð 30. nóvember 2005
Kristín Svavarsdóttir formaður HÍN opnaði nýja heimasíðu félagsins með formlegum hætti mánudag 28. nóv. sl., í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskólans, að viðstöddu fjölmenni.
Næsta fræðsluerindi HÍN 30. janúar 2006 30. nóvember 2005
Að venju liggur fyrirlestrahald niðri hjá HÍN í desember. Fyrsta fræðsluerindið á komandi ári verður haldið mánudag 30. janúar 2006 og ætlar dr. Magnús Jóhannsson líffræðingur hjá Landgræðslu ríkisins að fjalla um Uppblástur og landgræðslu á Grænlandi.
Heimasíða Hins íslenska náttúrufræðifélags opnuð 25. nóvember 2005
Nú er búið að endurhanna heimasíðu Hins íslenska náttúrufræðifélags og hún verður formlega opnuð mánudaginn 28. nóvember 2005, í stofu 132 í Öskju, á undan fyrirlestri Magnúsar Tuma Guðmundssonar.
Næsta fræðsluerindi HÍN 21. nóvember 2005
Mánudaginn 28. nóvember kl. 17:15 mun dr. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskólans fjalla um sprengigos í vatni og jökli, ísbráðnun og upptök jökulhlaupa.
Hið íslenska náttúrufræðifélag · Pósthólf 520 · 200 Kópavogur · Netfang: hin@hin.is