head06.jpg
Forsíða
Fréttir
Um félagið
Félagsbréf
Fræðslufundir
Fræðsluferðir
Náttúruminjasafn
Útgáfa HíN
Um tímaritið
Ritstjórn
Leiðbeiningar
Efnisleit

Annað vetrarerindi HÍN. Jöklabreytingar og loftslag 15. október 2008
Ágrip erindis
Geysilegar breytingar hafa orðið á íslenskum jöklum á sögulegum tíma og sennilega eru þær hvað örastar á okkar dögum. Talið er að jöklarnir hafi verið mun umfangsminni á landnámsöld heldur en nú. Að öllum líkindum hefur veðurfar kólnað nokkuð samfellt fyrstu 1000 ár Íslandsbyggðar og voru jöklar stærstir í kringum 1890 og höfðu þá ekki orðið stærri síðan ísöld lauk fyrir um 10.000 árum. Á 20. öld hlýnaði töluvert í heiminum og fór Ísland ekki varhluta af því. Jöklar landsins minnkuðu þá um það bil jafnmikið og þeir höfðu stækkað næstu 3 aldir þar á undan þrátt fyrir kuldatímabil eftir 1965 en þá stækkuðu þeir bæði að rúmmáli og flatarmáli. Síðustu 12 árin tók steininn úr. Sennilega er það hlýjasta 12 ára tímabil í Íslandssögunni, enda rýrna jöklar örar nú en vitað er til um að gerst hafi áður. Lætur nærri að flatarmál jöklanna minnki nú um 0,3% á ári hverju og rúmmálið um allt að 0,5%. Með slíku áframhaldi endast þeir vart meira en tvær aldir.

Nánar um erindi
<<<
Hið íslenska náttúrufræðifélag · Pósthólf 520 · 200 Kópavogur · Netfang: hin@hin.is