|
Náttúrufræðingurinn er félagsrit Hins íslenska náttúrufræðifélags. Um er að ræða alþýðlegt fræðslurit þar sem birtar eru greinar um náttúrufræði, jafnt fræðilegar greinar í bland við almennan fróðleik. Margar greinar í ritinu fjalla um rannsóknaniðurstöður á íslenskri náttúru sem eru hvergi birtar annars staðar. Leitast er við að gera efninu skil á aðgengilegan hátt þannig að áhugasamir leikmenn sem og fræðimenn geti haft bæði gagn og gaman af, þó án þess að slakað sé á í kröfum um gæði og áreiðanleika.
Í hverjum árgangi eru fjögur hefti sem ýmist eru gefin út stök eða fleir saman. Áskrift að tímaritinu er innifalin í félagsgjaldi. Ritið er auk þess keypt af ýmsum stofnunum og nálgast má Náttúrufræðinginn á öllum helstu bókasöfnum landsins.
Útgáfa Náttúrufræðingsins hófst árið 1931 og hefur verið samfelld í átta áratugi. Enn eru fáanlegir eldri árgangar Náttúrufræðingsins frá og með 46. árgangi 1976 og örfá eldri hefti. Hægt er að kaupa eldri hefti í lausasölu.
Verð Náttúrufræðingsins í lausasölu er eftirfarandi (kr. pr. hefti): árg. 30.-70., 100 kr.; árg. 71.-73. 400 kr.; árg. 74.-79. 750 kr. og; 80. árg og yngri, 1.772 kr. Árið 1996 gerðu HÍN og Náttúrufræðistofnun Íslands með sér samning um umsjón með ritstjórn tímaritsins. Sá samningur rann út árið 2006. Nýr samningur um umsjón með ritstjórn tímaritsins var gerður í september 2006 við Náttúrufræðistofu Kópavogs. Við það tækifæri urðu ritstjóraskipti þegar Hrefna B. Ingólfsdóttir tók við af Álfheiði Ingadóttur. Auk þess flutti ritstjórinn aðsetur sitt til Náttúrufræðistofu Kópavogs. Samningurinn við Náttúrufræðistofu Kópavogs rann út 1. maí 2010, en ritstjóri Náttúrufræðingsins hafði áfram aðstöðu á Náttúrufræðistofunni en varð starfsmaður félagsins samkvæmt þar að lútandi samningi. Hrefna B. Ingólfsdóttir lét af starfi ritstjóra í lok ágúst 2012 og þann 1.desember 2012 tók Sighvatur Blöndahl við ritstjórastarfinu.
Afgreiðsla Náttúrufræðingsins er í húsakynnum Náttúrufræðistofu Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogi. Sími ritstjórans, Sighvats Blöndahls, er 570 0433 og farsími hans er 892 9700.
|