Náttúrufræðingurinn birtir efni um öll svið náttúrufræða og má skipta því í fimm flokka: (1) hefðbundnar greinar um rannsóknir og niðurstöður þeirra, (2) yfirlitsgreinar um ákveðin svið, (3) athugasemdir, fréttir og tilkynningar, (4) gagnrýni og ritfregnir um náttúrufræðileg efni og (5) eftirmæli um náttúrufræðinga.
Almennt er óskað eftir því að greinar séu stuttar og hnitmiðaðar.
Handrit sendist til ritstjórans Sighvats Blöndahl (sighvaturb@simnet.is), sem hefur aðsetur á Náttúrufræðistofu Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur, fimmtudaga og föstudaga milli kl. 9 og 17. Hægt er að ná í Sighvat í síma 570 0433 og farsími hans er 892 9700.
Nánari leiðbeiningar eru að finna í grein í 3.-4. hefti 71. árgangs Náttúrufræðingsins bls. 153-154 en hægt er að sækja hana hér.
|